Feb 15, 2021
Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Það blæs verulega á móti hjá okkar mönnum og alls kyns furðusögur verið á lofti um helgina eftir slæmt tap gegn Leicester í leik sem var reyndar að svona 75% leiti vel spilaður af okkar mönnum. Leipzig í Meistaradeildinni annað kvöld, Everton um helgina og meiðslalistinn svo langur að Ingó Tóta er að semja lag um hann.