Preview Mode Links will not work in preview mode

Gullkastið


Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is sem hóf göngu sína í maí árið 2011

May 15, 2022

Liverpool eru bikarmeistarar 2022 eftir annan sigur gegn Chelsea á Anfield South eftir vítaspyrnukeppni. West Ham gaf Liverpool svo líflínu í deildinni með því að taka stig af City en dauðþreytt Liverpool liðið á næsta leik, Southampton úti á þriðjudaginn.
Sigur þar gerir næstu helgi spennandi, Liverpool fær Úlfana á Anfield á meðan Steven Gerrard og félagar fara á Etihad…

Okkar allra besta Hanna Símonardóttir var með okkur að þessu sinni og fræddi okkur m.a. um Liverpool skólann sem verður í tíunda skipti hér á landi í sumar.
1.mín – Bikarmeistarar
17.mín – Liverpool skóli Afureldingar
25.mín – BOSS Night á Íslandi 19.maí

Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: SSteinn, Maggi og Hanna Símonardóttir