Preview Mode Links will not work in preview mode

Gullkastið


Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is sem hóf göngu sína í maí árið 2011

Mar 6, 2023

Af öllum Liverpool liðumm sögunnar vann þetta lið stærsta sigur sögunnar gegn þeim! Ekki bara var þetta Man Utd heldur var þetta Man Utd á bullandi siglingu með tilheyrandi moldviðri í allan vetur. Stærsta tap United í Úrvalsdeildinni og raunar frá því vel fyrir heimsstyrjöldina kom á Anfield Road í gær. Þetta tímabil hættir ekki að vera skrítið og fullt af öfgum í báða enda. Þetta er ekki einu sinni stærsti sigur tímabilsins, klárlega sá sætasti samt.

Fyrir helgina vann Liverpool góðan 2-0 sigur og fékk jafn mörg stig fyrir það, eins asnalegt og það nú er. Tvö mörk í seinni hálfleik og það bara seint í hálfleiknum. Já og Liverpool skoraði sex mörk í seinni hálfleik gegn United, það var einu sinni vesen.

Næst er það Bournemouth, Liverpool vann þá 9-0 síðast…

Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: SSteinn og Maggi

Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.


 Egils Gull / Húsasmiðjan / Miðbar / Jói Útherji / Ögurverk ehf