Aug 26, 2024
Lokavikan á leikmannamarkaðnum og Liverpool virðist loksins vera
eitthvað að láta til sín taka. Federico Chiesa er heitasta nafnið í
slúðrinu núna en hann er óvænt orðaður við Liverpool. Leikmaður sem
verður 27 ára í haust og hefur verið á radar hjá Liverpool í nokkur
ár. Hann hefur verið skugginn af sjálfum sér eftir erfið meiðsli
árið 2021 og er ekki í plönum Motta hjá Juventus og á aðeins ár
eftir af samningi þar. Áður er hann meiddist var hann hinsvegar
besti maður ítala þegar þeir unnu EM og einn heitasti leikmaður
Evrópu. Auk Chiesa er Giorgi Mamardashvili markmaður Valencia
sagður hafa farið í læknisskoðun og verði staðfestur í þessari viku
sem leikmaður Liverpool en fari á láni til Valencia í a.m.k. eitt
tímabil.
Erfitt að sjá hvernig þessir tveir væru forgangsatriði á markaði
núna og eins stór spurning hvort Hughes og félagar séu að matreiða
eitthvað meira og bitastæðara?
Liverpool er annars með fullt hús stiga eftir góðan sigur á
Brentford og handbragð Slot er strax orðið augljóst á liðinu.
Næsta verk er fyrsta stóra prófið fyrir Slot, Man Utd á Old
Trafford.
Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: SSteinn og Maggi
Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti.
Egils
Gull / Húsasmiðjan / Verdi
Travel / Ögurverk
ehf / Done