Preview Mode Links will not work in preview mode

Gullkastið


Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is sem hóf göngu sína í maí árið 2011

Apr 16, 2019

Stærstu hindruninni á pappír var rutt úr vegi um helgina og pressan færð yfir á Man City í bili. Barcelona bíður í undanúrslitum fyrir það lið sem vinnur einvígið annað kvöld og ljóst að Meistaradeildin verður engin aukabrúgrein áfram komist Liverpool þangað. Cardiff með alla sína Neil Warnock-a bíður svo næstu helgi. Þetta og mun fleira í þætti vikunnar en með okkur að þessu sinni var meistari Jón Þór stjórnarmaður í Liverpool klúbbnum. Hann sá um Berger og Smicer um daginn og er oftar á Anfield en SSteinn.

Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: SSteinn, Maggi og Jón Þór Júlíusson stjórnarmaður í Liverpool klúbbnum.