Preview Mode Links will not work in preview mode

Gullkastið


Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is sem hóf göngu sína í maí árið 2011

Nov 21, 2019

Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur:SSteinn og Maggi

Stóru fréttir vikunnar voru að sjálfsögðu í fókus í þætti vikunnar þó þær snerti Liverpool ekki beint. Tottenham rak besta stjóra í nútímasögu félagsins og borgar samtals um 27m til að fá Mourinho í staðin til að vinna með Daniel Levy. Það ætti að sjónvarpa öllum þeirra fundum beint, Amazone Prime gæti séð um upptökurnar.

Síðasti leikur Liverpool var svo auðvitað gegn Man City og við erum langt í frá búnir að gleyma þeirri gleði. Næsta verk er svo Palace um helgina.